Fundargerð - 30. júní 2014
13. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn 30. júní 2104 kl. 10-12 í Kötlusetri í Vík.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Jóhannes Gissurarson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Steingerður Hreinsdóttir og Sigurður Sigursveinsson. Sigurður Sigursveinsson ritaði fundargerð.
Upplýsingamiðstöðvarnar og jarðvangurinn. Steingerður kynnti hugmynd um að skilgreint verði um 25% starfshlutfall í hverri upplýsingamiðstöð sveitarfélaganna þriggja sem sinni málefnum jarðvangsins – en auk þess verði starfsmaður í fullu starfi fyrir jarðvanginn. Þessi hugmynd fékk góðar undirtektir, hvað hlutastörfin varðar (25%) var tekið fram að hér væri ekki um ný störf að ræða. Ákveðið að Steingerður hafi frumkvæði að gerð sameiginlegra starfslýsinga í þessu sambandi í samvinnu við aðila á hverjum stað.
Hvað varðar fjármögnun á 100% starfinu var samþykkt að sveitarfélögin leiti eftir því við SASS að samtökin komi að henni.
Samþykkt að upplýsingamiðstöðvarnar verði merktar sem Katla Geopark Visitor Center, í samvinnu við viðkomandi rekstraraðila.
Umræða um ferðaskrifstofuleyfi. Eftir viðtöl Steingerðar við ferðaskrifstofurnar þrjár á svæðinu er talið skynsamlegast að stefna frekar að samvinnu við þessar ferðaskrifstofur fremur en að jarðvangurinn stofni sjálfur ferðaskrifstofu.
Rætt um „söluvarning“ sem til hefur orðið í IPA verkefninu. Gönguleiðakort, fræðsluefni af ýmsu tagi, „buff“ o.fl. sem mun nýtast jarðvanginum og starfsmanni hans. Auk þess hefur verið fjárfest í uppbyggingu áfangastaða.
Starfslýsing fyrir starfsmann Kötlu jarðvangs. Stjórnin samþykkir tillögu Steingerðar í þessu sambandi.
Ársfundur jarðvangsins. Ákveðið að gera tillögu um fimmtudaginn 30. október á Hótel Vík