Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 29. janúar 2014

10. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í skrifstofu sveitarstjóra í Rangárþingi eystra kl. 12-14:45 29. janúar 2014.

Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Helga Þorbergsdóttir, Jóhannes Gissurarson og Ísólfur Gylfi Pálmason. Auk þess sátu fundinn Steingerður Hreinsdóttir, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Sigurður Sigursveinsson, sem ritaði fundargerð.


 Steingerður greindi frá stöðu mála varðandi uppsögn á IPA samningnum. Haldinn var fjarfundur sl. mánudag í Reykjavík fyrir milligöngu utanríkisráðuneytisins með fulltrúum einstakra IPA verkefna á Íslandi. Í framhaldi af þeim fundi sendi Háskólafélagið tillögu í gær til Brüssel um það að draga úr kostnaði ESB við verkefnið án þess að segja samningum upp. Í morgun barst tölvupóstur þar sem Evrópusambandið er tilbúið að taka á móti ítarlegri gögnum í þessu sambandi – fyrir vikulokin.


 Steingerður fylgdi úr hlaði gögnum um kostnað og forsendur við rekstur jarðvangsins að loknu IPA verkefninu. Í umræðum komu m.a. fram sjónarmið um mikilvægi þess að treysta tengslin við ferðþjónustuaðilana á svæðinu og sveitarstjórnirnar. Velt upp ólíkum útfærslum, t.d. varðandi málefni tengd gjaldtöku á ferðamannastöðum, samstarf um rekstur upplýsingamiðstöðva og opinber framlög. Eindreginn vilji kom fram á fundinum við að leita lausna til að tryggja rekstur jarðvangsins til frambúðar.


 Ákveðið að stefna að samráðsfundum með ferðaþjónustuaðilum í hverju sveitarfélaganna þriggja í febrúar og kynna afrakstur slíkrar vinnu á sveitarstjórnarfundum í mars.


 Stefnt að næsta stjórnarfundi í jarðvanginum þriðjudaginn 4. mars kl. 12 á Kirkjubæjarklaustri.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.