Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 19. júní 2014

12. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn 24. júní 2104 kl. 10 í síma- og myndfundi.

Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson og Helga Þorbergsdóttir (í Vík), Jóhannes Gissurarson og Jóna Björk Jónsdóttir (á Klaustri), Ísólfur Gylfi Pálmason (á Hvolsvelli) og Sigurður Sigursveinsson og Steingerður Hreinsdóttir á Selfossi. Sigurður Sigursveinsson ritaði fundargerð.


 Rögnvaldur setti fund og fól Steingerði að fylgja dagskrárliðum úr hlaði.


 Kynntar voru tillögur að tveimur breytingum á samþykktum félagsins varðandi skipan stjórnar

(7. grein) og ársfund (13. grein):


Núverandi 7. gr.:


Stjórn stofnunarinnar skal skipuð fimm mönnum og fjórum til vara. Stjórn og varastjórn skal skipuð til tveggja ára í senn:


Tveir stjórnarmenn og einn til vara skulu tilnefndir af Háskólafélagi Suðurlands.


Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Rangárþings eystra og Skógasafns.


Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Mýrdalshrepps og Kötluseturs.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu.


Falli atkvæði á jöfnu skal atkvæði formanns ráða.

Tillaga að breyttri 7. gr.:


Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. Stjórnin skal skipuð til fjögurra ára í senn með eftirfarandi hætti, en varamenn til eins árs í senn:


Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Rangárþings eystra og Skógasafns.


Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Mýrdalshrepps og Kötluseturs.


Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu.


Einn varamaður skal tilnefndur sameiginlega af Háskólafélagi Suðurlands og Stofnun rannsóknarsetra HÍ.


Einn varamaður skal kosinn árlega á ársfundi af ferðaþjónustuaðilum sem gerst hafa aðilar að sjálfseignarstofnuninni.


Varamenn skulu að jafnaði boðaðir á stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétti.


Falli atkvæði á jöfnu skal atkvæði formanns ráða.

Núverandi 13. gr.:

Ársfundur

13. gr.


Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi. Stjórn félagsins undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:


Skýrsla stjórnar


Ársreikningur kynntur

Starfs- og fjárhagsáætlun


Önnur mál


Auk stjórnar og fyrrgreindra ferðaþjónustuaðila eiga fulltrúar stofnaðila seturétt á ársfundi.


Tillaga að breyttri 13. gr.:
Félagaaðild og ársfundur
13. gr.


Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi. Stjórn félagsins undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:


Skýrsla stjórnar
Ársreikningur kynntur
Starfs- og fjárhagsáætlun
Kosning varamanns í stjórn fyrir hönd ferðaþjónustuaðila sem aðild eiga að stofnuninni.
Önnur mál


Auk stjórnar og fyrrgreindra ferðaþjónustuaðila eiga fulltrúar stofnaðila seturétt á ársfundi.


Með þessum breytingum er verið að færa þessi ákvæði til fyrra horfs, þ.e. áður en að kom til IPA verkefnis Háskólafélagsins. Breytingarnar voru samþykktar samhljóða.


 Kynnt framvinda verkefna frá síðasta fundi.


 Rætt um fyrirkomulag á gestastofum jarðvangsins. Samþykkt að þær verði hluti af upplýsingamiðstöðvum sveitarfélaganna þriggja en áfram verði unnið að nánara fyrirkomulagi í þessu sambandi, merkingum oþh.


 Rætt um möguleg rekstrarform jarðvangsins til lengri tíma, m.a. varðandi ferðaskrifstofuleyfi, bókunarþjónustu og aðkomu sveitarfélaganna. Ákveðið að Steingerður kynni sér viðhorf núverandi ferðaskrifstofuaðila í jarðvanginum í þessu sambandi fyrir fundinn á mánudaginn.


 Næsti fundur ákveðinn mánudaginn 30. júní 2014 kl. 10 í Vík þar sem áfram verði unnið með rekstrarforsendur jarðvangsins til lengri tíma.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 11.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.