Fundargerð - 19. maí 2014
11. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í Kirkjubæjarstofu kl. 12-15 23. maí 2014.
Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Helga Þorbergsdóttir og Jóhannes Gissurarson. Auk þess sátu fundinn Steingerður Hreinsdóttir, Jóna Björk Jónsdóttir, Rannveig Ólafsdóttir, Árný Lára Karvelsdóttir og Sigurður Sigursveinsson, sem ritaði fundargerð.
Steingerður greindi frá jarðvangsvikunni í lok apríl. Þema vikunnar var landnámið. Góð þátttaka var í fjölmörgum gönguferðum sem boðið var upp á í tengslum við námskeiðið í staðarleiðsögn en þátttaka ferðaþjónustuaðila og skólanna var ekki mjög almenn. Enn liggur ekki fyrir hvort styrkur fáist frá Menningarráði vegna menningarhluta jarðvangsvikunnar. Ákveðið að senda nú í vor ábendingu til skólanna um jarðvangsvikuna 2015 með Njálu sem þema vikunnar.
Enn er ekki komin önnur greiðsla styrksins frá Evrópusambandinu en breyttur samningur var kominn undirritaður til Brüssel 2. maí. sl. þannig að væntanlega skilar greiðslan sér nú alveg á næstunni.
Greint frá undirbúningsstofnfundi samráðsvettvangs um jarðvanga í mars sem haldinn var að frumkvæði Kötlu jarðvangs. Stefnt að formlegum stofnfundi í haust. Á stjórnarfundinum kom fram ábending um að bæta fulltrúa leiðsögumanna í samráðsvettvanginn.
Steingerður fylgdi úr hlaði nýrri framvinduskýrslu. Jóna Björk greindi frá uppbyggingu salerna og áningarstaða, þ.m.t. fræðsluskiltum og göngustígum. Einnig kynnti hún gönguleiðakort, bæði á íslensku og ensku, fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig, og námskeiðahaldið sem nú er á lokametrunum. Rannveig sagði frá 12 manna hópi meistaranema í mannfræði frá Englandi sem kom í jarðvanginn í byrjun apríl. Um var að ræða fjögurra daga ferð sem jarðvangurinn sá um að öllu leyti (eftir að hópurinn kom til Íslands). Ferðin fékk einstaklega góða dóma í mati nemendanna og skilaði góðum tekjum til jarðvangsins. Einnig voru kynnt drög að kennsluefni tengt sex áfangastöðum í jarðvanginu. Þá var greint frá um 20 km fræðslustíg sem búið er að skilgreina á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni. Í undirbúningi er útgáfa bæklings um stíginn og Friður og frumkraftar hafa látið þróa app sem nýtist þeim sem ganga um stíginn með snjallsíma eða þess háttar. Loks greint frá endurútgáfu bæklingsins um Kötlu Geopark en hann verður aukinn nokkuð að umfangi, og heimasíðu jarðvangsins.
Ársreikningur jarðvangsings 2013 var kynntur og samþykktur. Ákveðið að fresta ársfundi til haustsins.
Samþykkt að Sigurður og Steingerður sæki fund EGN í byrjun september 2014.
Steingerður kynnti nokkrar hugmyndir um mögulegar tekjur fyrir jarðvanginn til frambúðar, umsjón með námsferðum, auglýsingar á heimasíðunni, sölu á vörum (gönguleiðakort, bæklingar, minjagripir og fræðsluefni). Einnig velti hún upp þeim möguleika að sveitarfélögin auglýstu eftir samstarfsaðila um rekstur jarðvangsins. Í umræðum kom fram að mikilvægt væri að ná niðurstöðu í málinu en efasemdir komu fram um að „útvista“ rekstur jarðvangsins í heild sinni. Jafnframt væri ljóst að nýjar sveitarstjórnir mundu þurfa að koma að ákvarðanatöku í málinu. Einnig kom fram að mjög mikilvægt væri að ekki yrði uppstytta í þeirra starfsemi jarðvangsins sem nú þegar er í gangi. Stjórnin samþykkir að jarðvangurinn ráði starfsmann/starfsmenn í þrjá mannmannmánuði fram til ársfundar í október. Meginhlutverk þess starfs verði að halda áfram vinnu við að afla frekari tekna fyrir jarðvanginn viðhalda og auka tengsl við skóla og ná inn skólahópun og undirbúa tillögugerð fyrir ársfundinn.
Næsti fundur áætlaður þriðjudaginn 24. júní 2014 í Vík.