Fundargerð - 29. janúar 2013
5 stjornarfundur 29.1.2013
Mætt: Rögnvaldur Ólafsson formaður, Ásgeir Magnússon varaformaður/ritari, Ísólfur Gylfi Pálmason gjaldkeri, Helga
Þorbergsdóttir meðstjórnandi, Ingibjörg Eiríksdóttir meðstjórnandi, Jóhannes Gissurarson varamaður, Eiríkur Vilhelm
Sigurðarson varamaður, Sigurður Sigursveinsson varamaður og Steingerður Hreinsdóttir rekstrarstjóri.
- Formaður setti fund, bauð stjórnarmenn velkomna og að því búnu var gengið til dagskrár.
Fundargerð síðasta fundar lá ekki fyrir en verður send stjórnarmönnum. Samþykkt var að Sigurður
Sigursveinsson tæki að sér ritun fundargerða.
- Undirrituð voru skjöl sem varða breytingar á stjórn jarðvangsins.
- Steingerður rekstrarstjóri gerði grein fyrir:
o þremur námskeiðum/kynningarfundum sem haldin voru í sveitarfélögunum þremur í desember,
o tveimur þriggja mánaða framvinduskýrslum sem sendar hafa verið Evrópusambandinu vegna IPA
verkefnisins,
o heimsókn erlends eftirlitsaðila frá ESB í nóvember sl.,
o forgangsröðun sveitarfélaganna varðandi uppbyggingu áfangastaða sbr. IPA verkefnið,
o hugmynd um að uppbygging áningastaðar í Hjörleifshöfða gæti nýst sem fyrirmynd á öðrum
áningastöðum,
o framvinduskýrslu rekstrarstjóra til stjórnar vegna síðustu mánaða,
o drögum að nýrri/uppfærðri heimasíðu jarðvangsins,
o ráðningu Ragnhildar Sveinbjarnardóttur 1. desember sl., en hún er jafnframt starfsmaður
Markaðsstofu Suðurlands, - hún mun m.a. vinna að undirbúningi jarðvangsvikunnar 22. -28. apríl nk.,
en m.a. er gert ráð fyrir að málefnum sr. Jóns Steingrímssonar verði gerð skil, þremur
þrautaviðburðum (göngu á Eyjafjallajökul, sandhlaupi umhverfis Hjörleifshöfða og hjólaferð í
Skaftárhreppi) auk ýmissa annarra viðburða,
o ráðningu Rannveigar Ólafsdóttur 1. febrúar nk. og Jónu Bjarkar Jónsdóttur 1. júní nk. sem
sérfræðingum í gerð fræðsluefnis,
o undirbúningi að námskeiði um smáframleiðslu matvæla, haldið á Hvolsvelli, í Vík og á Klaustri – með
stuðningi af fjarfundarbúnaði,
o skiltamálum, m.a. hugmynd að færa skiltið við Djúpadal inn á sveitarfélagmörk á hálendinu og gera
stærra skilti við Djúpadal, hugsanlega í samvinnu við sveitarfélagið,
o verkáætlun vegna þriggja næstu mánaða.
- Umræða um upplýsingamiðlun og fleira af því taginu. Samþykkt að varastjórnarmenn sæki a.m.k. suma
stjórnarfundi og þess verði gætt að fundargerðir verði aðgengilegar. - Formaður minnti á nauðsyn þess að virkja samráðshóp Vatnajökulsþjóðgarðs og jarðvangsins, m.a. vegna
skiltamála. - Sigurður gerði grein fyrir fjármálum jarðvangsins 2012. Háskólafélagið sá alfarið um fjármál og rekstur
jarðvangsins 2012. Bókfærður kostnaður 2012 er um 8 mkr en tekjur rúmlega 5 mkr. IPA verkefnið er ekki
inni í þessum tölum. - Stefnt er að næsta stjórnarfundi þriðjudaginn 12. mars kl. 11-15 í Skógum þar sem meginverkefnið verður að
fjalla um fjármál og framtíðarskipan jarðvangsins. - Samþykkt að Steingerður Hreinsdóttir verði með prókúru fyrir jarðvanginn.
- Fundi slitið kl. 15:20.
Mætt:
Anton Kári Halldórsson, Eva Björk Harðardóttir, Björg Árnadóttir, Þorbjörg Gísladóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir.
------------------------------------------
Anton Kári, formaður stjórnar, setti fund. Eftirfarandi var tekið fyrir á fundinum:
· Rætt um undirbúning áður boðaðs fundar með sveitarstjórnarfulltrúum og byggingarfulltrúum sveitarfélaganna þriggja á Hótel Vík kl. 16-18 þriðjudaginn 8. september. Samþykkt að annars vegar verði Alta með stutta framsögu um niðurstöðu stefnumótunarvinnunnar fyrr á árinu og hins vegar mundu Berglind og Jóhannes segja stuttlega frá núverandi verkefnum jarðvangsins, og í örstuttu máli frá meginverkefnum sem hafa verið unnin. Að öðru leyti lögð áhersla á að gott rými verði fyrir skoðanaskipti og umræður á fundinum. Ákveðið að tengiliðir sveitarfélaganna verði einnig boðaðir á fundinn.
· Rætt um undirbúning áætlanagerðar fyrir næsta starfsár og komu m.a. fram þau sjónarmið að mikilvægt væri að vinna hana út frá forgangsröðun verkefna í ljósi stefnumótunarinnar.
· Ákveðið að næsti stjórnarfundur verði haldinn á Hvolsvelli föstudaginn 25. september kl. 13:30.
Fjarfundi slitið kl.10:45.