Fundargerð - 26. nóvember 2013
8. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í Kötlusetri kl. 11-13 26. nóvember 2013.
Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Helga Þorbergsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir og Ísólfur Gylfi Pálmason. Auk þess sátu fundinn Guðlaug Ósk Svansdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Sigurður Sigursveinsson, sem ritaði fundargerð.
Steingerður greindi frá stöðu mála varðandi skýrslugerð til Evrópusambandsins um framgang IPA verkefnisins og fór yfir helstu atriði í framvinduskýrslunni. Beðið er eftir greiðslu nr. 2 skv. samningi Háskólafélagsins við Evrópusambandsins en hún verður væntanlega greidd að fengnu samþykki fyrrnefndra skýrslna.
Steingerður greindi frá styrkumsóknum jarðvangsins undanfarnar vikur; í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, Ísland allt árið og SASS/Vaxtarsamning Suðurlands.
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson kom inn á fundinn og sýndi drög að þremur gönguleiðakortum sem eru í vinnslu. Rannveig og Steingerður greindu frá fyrirhugaðri námskeiðaröð í jarðvanginum eftir áramót en þar mun m.a. verða boðið upp á framhaldsnámskeið í staðarleiðsögn.
Stjórnarmenn lýstu ánægju með starfsemina undanfarna mánuði en bentu á mikilvægi þess að kynna betur það sem gert hefur verið á vettvangi jarðvangsins og IPA verkefnisins.
Rætt var um þá staði þar sem IPA verkefnið mun leggja fé til uppbyggingar salernisaðstöðu. Skv. samningnum er um fimm staði að ræða.
o Búið er að koma upp salerni við Fjaðrárgljúfur í samvinnu við hagsmunaaðila í Skaftárhreppi.
o Fyrir liggur samkomulag við landeigendur varðandi salernisaðstöðu við Reynisfjöru og munu framkvæmdir fara af stað á allra næstu dögum.
o Á döfinni er að koma upp kamri á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls í samvinnu við Útivist.
o Fundur verður 6. desember varðandi mögulega uppbyggingu salernisaðstöðu í Dyrhólaey og mun þá væntanlega skýrast hvort jarðvangurinn geti komið að uppbyggingu þar.
o Verði ekki af framkvæmd við Dyrhólaey er hugsanlegt að koma að uppbyggingu aðstöðu í Þakgili.
o Skipulag við Seljalandsfoss liggur ekki fyrir en hugsanlega mætti fjárfesta í færanlegri aðstöðu.
o Í undirbúningi er uppbygging aðstöðu í Skaftáreldahrauni fyrir forgöngu Skaftárhrepps og Vegagerðarinnar en ekki er ljóst hvort fjárveiting fáist til þess.
Ákveðið að stefna að síma- eða fjarfundi stjórnar jarðvangsins miðvikudaginn 11. desember kl. 11.
Ítrekuð var ábending frá síðasta fundi um mikilvægi þess að jarðvangurinn kynnti sig á fundum sveitarstjórna í sveitarfélögunum þremur.
Stjórn æskir þess að fá fundargögn og dagskrá senda með nokkurra daga fyrirvara
Rætt var almennt um framtíð jarðvangsins að afloknu IPA verkefninu.
Stjórnin staðfestir ákvörðun fyrri funda (frá 18.6. og 25.6. 2012) um breytingu á samþykktum jarðvangsins.
Stjórnin staðfestir að Steingerður Hreinsdóttir og Sigurður Sigursveinsson eru prókúruhafar Kötlu jarðvangs.