Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 23. apríl 2013

6. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á Hvolsvelli kl. 9-12 23.4. 2013 á skrifstofu sveitarstjóra.

Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Ingibjörg Eiríksdóttir og Eiríkur Vilhelm Sigurðarson (varamaður Ásgeirs Magnússonar). Helga Þorbergsdóttir boðaði forföll. Auk þess sat Árný Lára Karvelsdóttir fundinn og Sigurður Sigursveinsson, sem ritaði fundargerð. 


 Sigurður Sigursveinsson greindi frá rekstrartölum jarðvangsins 2012 en eins og áður hefur Háskólafélagið séð um fjármál hans. Bókfærður kostnaður vegna verkefnisins var um 10,5 mkr en tekjur upp á um 7 mkr þannig að bókfært framlag Háskólafélagsins nemur um 3,5 mkr og hefur þá ekki verið reiknuð vinna framkvæmdastjóra þess varðandi verkefnið. Síðari hluta ársins 2012 kom síðan til viðbótar velta sem fjármögnuð var af IPA verkefninu frá Evrópusambandinu.


 Steingerður Hreinsdóttir fylgdi úr hlaði þremur hugmyndum um rekstrarmódel fyrir jarðvanginn. Í fyrsta lagi að sveitarfélögin axli ábyrgð á rekstrinum sameiginlega en treysti að öðru leyti á verkefnastyrki. Í öðru lagi að að jarðvangurinn verði rekinn með svipuðum hætti og Markaðsstofa Suðurlands þar sem bæði sveitarfélög og ferðaþjónustuaðilar greiði til jarðvangsins. Í þriðja lagi blandað rekstrarmódel (public-private) sem felur í sér samvinnu ferðaþjónustuaðila, sveitarfélaga og jarðvangsins.
Rætt um þann möguleika að rekstur upplýsingamiðstöðvanna yrði endurskilgreindur þannig að þar yrði heimilt að selja ferðapakka innan jarðvangsins. Slíkt kallaði á náið samstarf sveitarfélaganna með jarðvanginum og skoðun á þeim reglum sem kunna að gilda um upplýsingamiðstöðvar.


 Greint frá jarðvangsvikunni sem nú stendur yfir. Ragnhildur Sveinbjarnardóttir hefur haldið utan um verkefnið. Meðal viðburða má nefna fyrirlestra um Jón Steingrímsson eldklerk á Kirkjubæjarklaustri og í Vík. Gengið verður á Eyjafjallajökul, hlaupið í kringum Hjörleifshöfða og hjólað um Skaftártungu. Stefnt er að opnun nýs áfangastaðar (geosite) við Hjörleifshöfða í vikunni í samvinnu við landeiganda, sveitarfélagið og Vegagerðina. Þessir og fjölmargir fleiri viðburðir hafa verið auglýstir í Dagskránni, á heimasíðu og facebook.


 Elma Balic kom í sína aðra eftirlitsferð í byrjun apríl á vegum Evrópusambandsins. Farið var sérstaklega yfir skipulagsmálin í þessari ferð og farið um jarðvanginn allt austur á Kirkjubæjarklaustur.


 Farið yfir framvinduskýrslu 2 þar sem farið er yfir hvað gert hefur verið feb-mars 2013.


 Rætt um verkefnin framundan (verkáætlun maí-júlí). Stefnt að því að styðja við uppbyggingu á salernisaðstöðu í sumar við Seljalandsfoss, Reynisfjöru og Fjaðrárgljúfur í samvinnu við hagsmunaaðila. Auk þess bætt aðgengi og fræðsluskilti við Efra-Hvolshella, Þríhyrning, Gluggafoss (ef leyfi fæst), Hamragarða, Skógafoss, Sólheimajökul, Pétursey/Klifandi, Víkurfjöru, Hjörleifshöfða, Álftaversgíga (við Skálm), Eldvatn við Ása, Skaftáreldahraun (gegnt Fjaðrárgljúfri) og fræðslustíg við Kirkjubæjarklaustur.


 Ákveðið að birta fundargerðir, framvinduskýrslur og verkáætlanir á www.katlageopark.is, auk þess sem þetta efni verður sent stjórn og varastjórn.


 10. júní kemur Elma Balic í sína 3. heimsókn varðandi IPA verkefnið. Stefnt að því að þann dagur verði stjórnarfundur í Skógum.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.