Fundargerð - 21. ágúst 2013
7. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í Suður-Vík kl. 10-12:45 21. ágúst 2013.
Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Helga Þorbergsdóttir og Ísólfur Gylfi Pálmason en Ingibjörg Eiríksdóttir boðaði forföll. Auk þess sátu fundinn Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Jóhannes Gissurarson, Árný Lára Karvelsdóttir, Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, Rannveig Ólafsdóttir, Guðlaug Ósk Svansdóttir og Sigurður Sigursveinsson, sem ritaði fundargerð.
Steingerður fylgdi úr hlaði yfirliti um IPA verkefnið, 1. og 2. ár. Sl. haust voru 15 áfangastaðir valdir til uppbyggingar. Í Rangárþingi eystra sá sveitarfélagið um framkvæmdir við staðina fimm þar í samráði við Árnýju Láru, í Skaftárhreppi hvíldi þetta mikið á starfsmönnum verkefnisins, Jónu Björk og Rannveigu í Kirkjubæjarstofu og í Mýrdalshreppi hefur Eiríkur í Kötlusetri verið lykilmaður í samhæfingu vinnu við áfangastaðina þar. Almennt má þó segja að mikil vinna hafi farið í samtal við landeigendur og aðra hagsmunaðila varðandi ýmis konar ákvörðunartöku, en töf á undirritun IPA samningsins og breytingar á starfsmannahaldi hafa seinkað nokkuð verkefninu miðað við áætlun, en því lýkur eigi að síður í lok júní 2014. Þá kynnti Steingerður fyrirhugaða námskeiðaröð nú í vetur.
o Rætt um framkvæmd jarðvangsvikunnar í apríl sl., m.a. hvernig hægt er að auka þátttöku heimafólks í dagskrá vikunnar, t.d. með samstarfi um dagskrá á sumardeginum fyrsta.
o Guðlaug benti á álitamál varðandi númer á áfangastöðum (geosites) og tengingu þeirra við númer á t.d. áfangstöðum sem Rangárþing eystra er að byggja upp.
o Rætt um mikilvægi þess að kynna betur afrakstur IPA verkefnisins fyrir ferðaþjónustuaðilum á svæðinu, auk almennrar kynningar í fjölmiðlum.
Steingerður fylgdi úr hlaði drögum að rekstrarforsendum jarðvangsins að loknu IPA verkefninu og greindi m.a. frá styrk úr Vaxtarsamningi Suðurlands sem jarðvangurinn fékk til að skoða m.a. samspil upplýsingastofa sveitarfélaganna við framtíðarrekstur jarðvangsins og tengsl hans við einstök ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu.
o Bent á mikilvægi þess að málið verði kynnt sem fyrst einstökum sveitarstjórnum á svæðinu.
o Rætt um að ferðaþjónustan á svæðinu er í lykilhlutverki hvað varðar framtíð jarðvangsins.
o Ábending kom fram um að tímabært væri að huga að sameiginlegri stefnumótun í ferðamálum í sveitarfélögunum þremur (= jarðvanginum).
o Rætt um álitamál varðandi það hver eigi að sjá um þrif o.þ.h. við áningastaðina.