Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 11. desember 2013

9. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, símafundur kl. 11 þann 11. desember 2013.

Í símanum: Rögnvaldur Ólafsson, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson í forföllum Ásgeirs Magnússonar,
Ingibjörg Eiríksdóttir og Ísólfur Gylfi Pálmason. Auk þess var á símafundinum Sigurður Sigursveinsson,
varamaður Helgu Þorbergsdóttur, og ritaði fundargerð.


Dagskrá:


 Salernismál í Dyrhólaey.
Eiríkur greindi frá fundi þeirra Ásgeirs með Umhverfisstofnun sl. föstudag. Fram kom að
Umhverfisstofnun stefnir að því að koma upp salerni á lágeynni í sumar en hugsanlega mun
því ekki ljúka fyrr en 2015. Umhverfisstofnun fer fram á að Mýrdalshreppur sjái um rekstur
salernisins þegar landvörður er ekki á staðnum. Ekki er gert ráð fyrir fjármögnun frá Kötlu
jarðvangi varðandi byggingu þessa salernis.


 Fréttir af fjármálum IPA.
Steingerður fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaða uppsögn Evrópusambandsins á
samningnum við Háskólafélagið um Kötlu jarðvang, m.a. frá símtali sínu við tengilið
verkefnisins í Brüssel í gær. Formlegt bréf um áform ESB um uppsögn samningsins barst
Háskólafélaginu sl. föstudag og hefur félagið allt að tveimur vikum til að bregðast við því. Á
þessu stigi er samningurinn í gildi, en ef ESB segir upp samningnum þá mun honum í fyrsta
lagi ljúka í lok febrúar, þ.e. fjórum mánuðum fyrr en gert var ráð fyrir. Miklu skiptir að í svari
Háskólafélagsins við bréfinu frá ESB komi skýrt fram þau sjónarmið okkar að ekki beri að
segja upp samningnum og rökin fyrir því. Háskólafélagið þarf að taka afstöðu til þess fyrir
áramót hvort starfsmönnum Kötlu jarðvangs verði í ljósi stöðunnar sagt upp (með þriggja
mánaða fyrirvara).


 Fundir með sveitarstjórnum.
Stefnt er að því að funda með einstökum sveitarstjórnum í janúar, hvort sem af uppsögn
samningsins verður eður ei.

Stjórnarmenn munu fylgjast með framvindu mála með tölvupóstum frá Sigurði/Steingerði
næstu daga og vikur og boðað verður til annars símafundar ef þurfa þykir.


Símafundi slitið kl. 11:45.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.