Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 18. juni 2012

55. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í fjarfundi fimmtudaginn 3.9 2020 kl. 10.

Á línunni: Ísólfur Gylfi Pálmason, Ásgeir Magnússon, Ingibjörg Eiríksdóttir og Vilborg
Arna Gissurardóttir

Dagskrá fundarins: Breytingartillögur stjórnar.

Ásgeir setur fundinn kl 09:40

Fjallað er um breytingatillögur stjórnar. Til þess að breytingar nái fram að ganga þarf
skv 14. gr samþykktanna að:


Heimilt er að breyta samþykktum stofnunarinnar og þarf til þess samþykki allra
stjórnarmanna stofnunarinnar á tveimur fundum stjórnar, sem haldnir skulu með minnst
einnar viku millibili, svo og samþykki þeirra aðila sem hafa lagt fram minnst 2/3 hluta þess
stofnfjár sem farið er með atkvæði fyrir. Til að auka skuldbindingar aðila þarf þó
samþykki þeirra allra.


Óskað verður eftir undirritun eftir seinni breytingarfund og þá ættu nýju samþykktirnar
að geta tekið gildi undir lok mánaðarins. Misjafnt er hvenær hlutaðeigandi sveitastjórnir
funda sökum sumarfría og því verður ekki endanlega skipað í nýja stjórn fyrr en í ágúst.


Ásgeir fer yfir eftirfarandi breytingartillögur:
1) Heimilisfang

2. gr. Heimilisfang og varnarþing félagsins er að Víkurbraut 28, Vík í Mýrdal.
Verður
Heimilisfang og varnarþing félagsins er að Hlíðarvegur 16 Hvolsvelli.

2) Í 5. Gr er kennitala Kötluseturs færð inn og verður því:
Kötlusetur kt: 640511-1250

3) Stjórn
7.gr.
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. Stjórnin skal
skipuð til fjögurra ára í senn með eftirfarandi hætti, en varamenn til eins árs í senn:
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Rangárþings eystra og
Skógasafns.
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Mýrdalshrepps og Kötluseturs.
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Skaftárhrepps og
Kirkjubæjarstofu.
Einn varamaður skal tilnefndur sameiginlega af Háskólafélagi Suðurlands og Stofnun
fræðasetra HÍ.
Einn varamaður skal kosinn árlega á ársfundi af ferðaþjónustuaðilum sem gerst hafa
aðilar að sjálfseignarstofnuninni.
Varamenn skulu að jafnaði boðaðir á stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétti.

Verður:
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð fimm mönnum og fjórum til vara. Stjórn og
varastjórn skal skipuð til tveggja ára í senn:
Tveir stjórnarmenn og einn til vara skulu tilnefndir af Háskólafélagi Suðurlands.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu
Rangárþings eystra og Skógasafns.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu
Mýrdalshrepps og Kötluseturs.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu
Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu.
Falli atkvæði á jöfnu skal atkvæði formanns ráða.

4) 9. gr.
Stjórn stofnunarinnar ræður framkvæmdastjóra og ákveður starfskjör hans.
Framkvæmdastjóri hefur með höndum stjórn á daglegum rekstri stofnunarinnar og
kemur fram fyrir hönd hennar í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.
Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar
um rekstur stofnunarinnar, sem þeir kunna að óska og veita ber samkvæmt lögum.

Verður:
Stjórn stofnunarinnar ræður rekstrarstjóra og ákveður starfskjör hans.
Rekstrarstjóri hefur með höndum stjórn á daglegum rekstri stofnunarinnar og
kemur fram fyrir hönd hennar í öllum málum sem varða venjulegan rekstur.
Rekstrarstjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar
upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir kunna að óska og veita ber
samkvæmt lögum.

5) Félagaaðild og ársfundur
13. gr.
Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að
sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi. Stjórn félagsins
undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Starfs- og fjárhagsáætlun
4. Kosning varamanns í stjórn fyrir hönd ferðaþjónustuaðila sem aðild eiga að
stofnuninni.
5. Önnur mál
Auk stjórnar og fyrrgreindra ferðaþjónustuaðila eiga fulltrúar stofnaðila seturétt á
ársfundi.
Verður:

Ársfundur

13. gr. Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að
sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi. Stjórn
félagsins undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Starfs- og fjárhagsáætlun
4. Önnur mál
Auk stjórnar og fyrrgreindra ferðaþjónustuaðila eiga fulltrúar stofnaðila seturétt
á ársfundi.

Allir stjórnarmenn samþykkja breytingarnar án frekari umræðna.


Fundi er slitið kl 09:50

Seinni breytingarfundur mánudaginn 25. Júní

Fundargerð ritaði: Vilborg Arna Gissurardóttir

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.