Fundargerð - 12. september 2012
4. stjórnarfundur Hvolsvöllur- 12.09.2012
Fundur settur kl: 11.15, á Sveitarstjórnarskrifstofu Rangárþings.
Mættir: Rögnvaldur Ólafsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Sigurður Sigursveinsson, Ásgeir Magnússon og
Vilborg Arna Gissurardóttir – rekstrarstjóri KGP.
Fjarveru boðuðu: Ingibjörg Eiríksdóttir og Steingerður Hreinsdóttir
Dagskrá:
1. Ný stjórn skiptir með sér verkum.
Tilnefndir fulltrúar í stjórn eru:
Háskólafélag Suðurlands: Steingerður Hreinsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson. Varamaður:
Sigurður Sigursveinsson.
Rangárþing eystra og Skógarsafn: Ísólfur Gylfi Pálmason. Varamaður: Sverrir Magnússon.
Mýrdalshreppur: Ásgeir Magnússon. Varamaður: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
Skaftárhreppur: Ingibjörg Eiríksdóttir. Varamaður: Jóhannes Gissurarson
Samkvæmt samþykktum á að kjósa formann, gjaldkera og ritara sem er jafnframt
varaformaður.
Ísólfur stingur upp á Ásgeiri sem stjórnarformanni. Sigurður telur það álitamál þar sem
Háskólafélagið leiði verkefnið þar sem það ber ábyrgð á fjármálum verkefnisins. Ásgeir
sammála því. Ísólfur dregur tillögu sína til baka. Sigurður telur jafnframt að það komi til
endurskoðunar eftir tvö ár að IPA styrknum loknum.
Ásgeir styður þetta heilshugar, vill færa þetta nær þeim sem halda utan um starfsemina og
það var hugmynd með útvíkkaðri stjórn.
Sigurður stingur því upp á Rögnvaldi Ólafssyni - það er samþykkt með öllum atkvæðum.
Ísólfur Gylfi er núverandi ritari. Ásgeir tilnefndur sem ritari og jafnframt varaformaður það er
samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Ásgeir stingur upp á Ísólfi sem gjaldkera. Spurt er um hlutverk: Sigurður gerir grein fyrir að
hingað til hafi ekki verið mikil umsýsla en nú muni það breytast vegan IPA og aðgreinds
fjárhags jarðvagns sbr styrkir og þess háttar.
Rætt er um laun til stjórnarmanna. Ásgeir telur eðlilegt að greidd séu stjórnarlaun fyrir
vinnuna á sömu forsendum og sveitarfélagsverkefni. T.d. tekið mið af þingfarakaupi og SASS.
Ásgeir telur einnig nauðsynlegt að koma upp bankareikning fyrir þá þætti sem eru fyrir utan
IPA verkefnið og gjaldkera ber að fylgja því eftir.
Ný stjórn jarðvangsins Katla Geopark
- Stjórnarformaður: Rögnvaldur Ólafsson
- Ritari og varaformaður: Ásgeir Magnússon
- Gjaldkeri: Ísólfur Gylfi Pálmason
- Meðstjórnendur: Ingibjörg Eiríksdóttir og Steingerður Hreinsdóttir.
2. Staða verkefnisins.
Rekstarstjóri kynnir verkefna og fjárhagsáætlun 2012. Áætlunin er miðuð við IPA verkefnið
og nær því frá júlí til áramóta.
Í framhaldinu eru umræður um formgerðara stjórnarstarf og betra upplýsingafræði til
stjórnar, sveitastjórna á svæðinu og hagsmunaaðila. Gerð er grein fyrir síðunni
www.jardvangur.is sem búið er að setja upp. Þar á að hýsa öll gögn sem ætluð eru
hagsmunaaðilum. Eitt af verkefnum haustsins er að aðlaga síðuna svo hún þjóni hlutverki
sínu.
Einnig er rætt um að halda formlegan kynningarfund fyrir hagsmunaaðila til þess að kynna
IPA verkefnið.
Vilborg gerir einnig grein fyrir uppsögn sinni hjá jarðvangnum. Vilborg verður að störfum
fram yfir Vestnorden í byrjun október mánaðar.
3. Staða verkefna sem unnið hefur verið að síðustu mánuði.
Rekstarstjóri kynnir fyrir stjórn afrakstur síðustu verkefna.
a) www.katlageopark.is.
Ný síða ætluð sem markaðstæki fyrir jarðvanginn. Þar er að finna upplýsingar um svæðið,
fróðleik og tengingar inn á hagsmunaaðila. Síðan tónar við annað kynningarefni sem hefur
verið gert s.l. ár fyrir jarðvanginn.
b) Áhættumat áfangastaða.
Verkefnið er fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Unnið var áhættumat fyrir 15 áfanga staði
innan jarðvangsins. Matið skiptist niður í áhættugreiningu, viðbragðsáætlun og
aðgerðaráætlun.
c) Neyslukönnun ferðamanna.
Könnun var gerð á meðal ferðamanna innan jarðvangsins í sumar. Með henni er ætlað að
svara spurningum um neysluvenjur ferðamanna auk þess að vera mælikvarði um þróun
innan jarðvangsins. Áfangaskýrsla með bráðabirgðarniðurstöðum var kynnt.
d) Stutt yfirlit yfir önnur verkefni.
Önnur verkefni innan jarðvangsins kynnt : fyrirlestur og vinnusmiðja í ferðamáladeildinni í
Hólaskóla, samræming á fatnaði fyrir starfsmenn upplýsingamiðstöðva innan jarðvangsins,
þátttöku í auðlindagreiningu með Rannsóknarmiðstöð ferðamála, nýtilkomnu
ferðaskipuleggjendaleyfi o.fl.
Vilborg sýnir einnig undirbúnings vinnu að stofnun ferðaskrifstofu. Búið er að vinna
grunnvinnu að rekstar og viðskiptaáætlun. Vilborg óskar eftir samþykki stjórnar til að leggja
inn umsókn um leyfi. Það er samþykkt.
4. Önnur mál.
a) Rekstrarstjóri Kötlu – Jarðvangs Vilborg Arna Gissurardóttir hefur sagt starfi sínu lausu vegna
áforma um að ganga á Suðurpólinn og óskar eftir því að láta af störfum sem fyrst í október.
Stjórnin harmar þessa ákvörðun Vilborgar þar sem verkefnið er nú að fara af stað og mikil
vinna framundan, en þakkar henni góð störf hennar fyrir Kötlu – Jarðvang þann tíma sem hún
hefur unnið fyrir félagið. Stjórnarmenn lögðu áherslu á að starfsmenn Jarðvangsins hefðu
aðsetur í Jarðvanginum, en við núverandi aðstæður væri eðlilegt að gera á því tímabundna
undantekningu þar sem í boði væri að ráða Steingerði Hreinsdóttur í starf rekstrarstjóra strax
og hún getur fengið sig lausa frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands.
Ekki fleira gert og fundi slitið kl: 13.30
Fundargerð rituðu: Vilborg Arna Gissurardóttir og Ásgeir Magnússon seinasta liðinn á dagskránni.