Fundargerð - 11. janúar 2011
1. fundur Jarðvangur Katla Geopark 11 janúar 2011 á Hvolsvelli.
1. fundur stjórnar Jarðvangs Katla Geopark haldinn á Hvolsvelli 11. janúar 2011
kl. 16.00. Mættir eftirtaldir stjórnarmenn: Ásgeir Magnússon, Ingibjörg
Eiríksdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason, Sigurður Sigursveinsson varamaður
Rögnvaldar Ólafssonar.
Dagskrá:
1. Stjórn skiptir með sér verkum: Formaður Ásgeir Magnússon,
varaformaður og ritari Ísólfur Gylfi Pálmason en hann ritaði þessa
fundargerð, gjaldkeri Ingibjörg Eiríksdóttir.
2. Undirbúningshópur: Stjórnin telur mjög nauðsynlegt og hvetur til þess að undirbúningshópur haldi áfram starfi til aðstoðar stjórnar verkefnisins.
3. Starfsmaður: Samþykkt að Ragnhildur Sveinbjörnsdóttir verði áfram
starfsmaður verkefnisins í 50% starfi til allt að 1. maí. Háskólafélag
Suðurlands ábyrgist launagreiðslur a.m.k. þar til fjárhagsáætlun liggur
fyrir. Hugað verður að áframhaldandi starfsmannahaldi síðar. Einnig er
hvatt til þess að starfsmenn stofnana jarðvangs aðstoði áfram við
verkefnið eftir þörfum.
4. Styrkur til verkefnisins: Hvatt til þess að aðildarsveitarfélögin greiði
áfram sambærilega upphæð til verkefnisins eins og verið hefur. Formanni
falið að senda sveitarstjórnum bréf vegna þessa. Aftur hefur verið sótt
um styrk til Ferðamálastofu og styrkir hafa fengist til námskeiðahalds.
Einnig hefur veri sótt um aðild að European Geopark Network. Framlag
Alþingis til verkefnisins er kr. 1.5 millj.
5. Aðkoma ferðaþjónustunnar að verkefninu: Í samþykktum verkefnisins
er gert ráð fyrir að komu ferðaþjónustuðila að verkefninu. Einnig er gert
ráð fyrir að þeir eigi einn fulltrúa í stjórn verkefnisins. Framundan er að
kynna ferðaþjónustuaðilum verkefnið og hvetja þá til þátttöku í því.
Fleira ekki rætt fundi slitið kl. 16.15
sigurdur@hfsu.is, sveitarstjori@vik.is ,ibi@hi.is, ibi@klaustur.is , isolfur@hvolsvollur.is