Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Þykkvabæjarklaustur er kirkjustaður í Álftaveri.

Þykkvabæjarklaustur

Þykkvabæjarklaustur er kirkjustaður í Álftaveri.

Þykkvabæjarklaustur

Þykkvabæjarklaustur er í Álftaveri og þar var munkaklaustur af Ágústínusarreglunni,  stofnað árið 1168 og hélst til siðaskipta. Klaustrið varð landmikið og auðugt á sínum tíma og einnig lærdómssetur, og dvöldu margir merkir einstaklingar þar á meðan það var virkt.

Fyrstur ábóta þar var Þorlákur Þórhallsson, síðar biskup í Skálholti, en eftir honum er Þorláksmessa nefnd og var hann talinn heilagur maður eftir dauða sinn. Þá var einnig Eysteinn Ásgrímsson munkur þar, en hann orti líklega helgikvæðið Lilju eins og frægt er. Þá er einnig talið að Svínfellinga saga og Hrafnkels saga hafi verið skráðar á Klaustrinu.

Í dag stendur kirkja á Þykkvabæjarklaustri, reist árið 1864, en skammt sunnan við hana er stuðlabergssúla sem er reist á þeim stað sem talið er að klaustrið hafi staðið. Nýlegar rannsóknir fornleifafræðinga hafa hins vegar sýnt fram á það að klaustrið hafi líklega staðið lengra frá kirkjunni, undir gömlu bæjarstæði býlisins Fornufjósa sem einnig er skammt frá núverandi kirkju.     

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.