Höfðabrekka og Þakgil: Saga og gönguleiðir
Þakgil
Höfðabrekka er austasti bær vestan Mýrdalssands. Höfðabrekka er gamalt höfuðból, kirkjustaður og stórbýli til forna. Í Kötluhlaupi árið 1660 tók bæinn af og var hann þá fluttur upp á heiðina og var hann ekki fluttur niður aftur fyrr en 1964. Þakgil er ekki langt frá Höfðabrekku og er landslagið á leiðinni inn í Þakgil stórkostlegt.
Í Þakgili er gott tjaldsvæði og liggja nokkrar gönguleiðir um svæðið. Göngutúr um svæðið svíkur engan þar sem útsýnið er frábært ásamt því að hafa áhugaverðar jarðmyndanir við hvert fótmál. Svæðið er opið yfir sumartímann og er þá vegurinn yfirleitt fær öllum bifreiðum.
Þá má einnig geta þess að vegurinn inn að Þakgili var þjóðleiðin austur að Mýrdalssandi í um það bil 20 ár, þangað til Jónsmessuhlaupið í Múlakvísl árið 1955 rauf hana og í kjölfarið var byggð ný brú á Múlakvísl á núverandi þjóðleið. Upplýsingar um tjaldsvæðið má finna á www.thakgil.is