Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Kvernugil Canyon

Kvernufoss Waterfall

Kvernugil Canyon

Kvernufoss

Kvernugil er um það bil 500 m austan við Byggðasafnið í Skógum og er falleg gönguleið inn gilið og að hinum 40 m háa Kvernufossi sem fellur þar niður af bjargbrúninni.

Gangan inn gilið að fossinum tekur um 20 mínútur og er nýlagður göngustígur í gilinu. Margar jarðmyndanir sjást úr gilinu og má þar m.a. sjá fallegt stuðlaberg, kubbaberg og lagskipt móberg. Kvernugil byrjaði líklega að myndast við lok síðasta jökulskeiðs og hefur áin grafið sig niður í jarðlagastaflann síðan þá. Um gilið rennur áin Kverna, eða Kvernhólsá, sem er bergvatnsá með upptök á Skógaheiði og rennur í Skógá um 2,1 km neðan við Kvernufoss.

Kvernufoss er einkar fagur foss og er einn af fáum fossum á Íslandi sem hægt er að ganga á bak við. Bak við fossinn er bergið laust í sér og oft sleipt þar, og ætti því fólk að fara varlega þegar farið er þar um.  

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.