Skriðjökull Kötlu
Kötlujökull
Skriðjökulinn Kötlujökull kemur úr austanverðum Mýrdalsjökli. Jökulís úr stærsta hluta öskju Kötlu skríður í Kötlujökul, og fer hann í gegnum skarð á öskjunni á milli Hábungu og Kötlukolla. Eftir það breiðir Kötlujökull síðan úr sér og kemur niður á flatlendi á milli Sandfells og Hafurseyjar.
Kötlujökull var áður þekktur sem Höfðabrekkujökull, en er nú í dag nánast eingöngu kallaður Kötlujökull en Höfðabrekkujökulsnafnið hefur fests við sandjökulinn sem myndaðist suðaustan við Höfðabrekku í hlaupunum úr Kötlu árin 1721 og 1755. Líkt og flestir skriðjöklar á Íslandi hefur Kötlujökull hopað mikið undanfarin ár og er jökulsporðurinn yfirleitt mjög dökkur vegna sets í ísnum.
Skriðökullinn er kannski best þekktur fyrir það að flest jökulhlaup sem hafa komið frá Kötlu og Mýrdalsjökli síðustu 1100 ár hafa farið í gegnum hann. Þá er jökullinn einnig þekktur fyrir sína gullfallegu íshella og þá er náttúrufegurðin við jökulsporðinn einnig mikil.