Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Gönguferð yfir Vík

Hatta

Gönguferð yfir Vík

Hatta

Hatta er stórglæsilegt móbergsfjall, eða tindur kannski frekar, og er í vesturbrún Víkurheiðar.

Hatta er um 504-512 m að hæð og því hæsta fjallið við Vík og er útsýnið af því stórfenglegt. Fjallið er væntanlega tiltölulega ungt á jarðfræðiskala, líklega myndað á síðasta eða næstsíðasta hlýskeiði ísaldar, og er, eins og flest ef ekki öll fjöll í Mýrdalshreppi, hluti af íslensku móbergsmynduninni og myndað innan eldstöðvakerfi Kötlu.

Efst í Höttu sjálfri má sjá mjög fallega lagskipt móberg og þá er þar einnig töluvert af brotabergi (þursabergi) að finna. Neðri hluti fjallsins er hins vegar að mestu leyti hulinn urðarbrekkum, skriðum og grónu landi. Hatta er nokkuð jökulsorfin og er hugsanlegt að tindurinn sjálfur hafi verið lítið jökulsker sem stóð upp úr hinum hörfandi ísaldarjökli. 

Skemmtileg gönguleið er upp á fjallið, en ekki fyrir alla þar sem það getur verið ansi bratt upp. 

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.