Skriðjökull úr Eyjafjallajökli
Gígjökull
Skriðjökulinn Gígjökull er hluti af Eyjafjallajökli og á upptök sín í öskju Eyjafjallajökuls.
Jökullinn hefur rofið skarð í öskjuna norðanverða og skríður jökullinn þar niður á láglendið í gegnum lítinn og stuttan dal sem hann hefur myndað. Gígjökull er annar af tveimur skriðjöklum sem koma úr norðanverðum Eyjafjallajökli, en Steinholtsjökull er í næsta dal rétt austan við Gígjökul.
Jökullinn hefur hlaðið upp tignarlegan jökulgarð fyrir framan sig og er svæðið fyrir framan jökulinn gullfallegt. Fyrir gosið í Eyjafjallajökli 2010 var einnig stórt jökullón fyrir framan jökulinn, en það fylltist vegna efnis sem kom með jökulhlaupunum á meðan á gosinu stóð.
Jökuláin hefur grafið sig nokkuð niður í uppfyllinguna, en víða má enn sjá fallegar jarðminjar í setinu frá jökulhlaupinu, þar á meðal jökulker. Við gosið bráðnaði jökulinn mikið og brotnaði upp, bæði vegna hraunflæðis og jökulhlaupanna á meðan á gosinu stóð, en er nú að jafna sig hægt og rólega en er þó langt frá því sem hann var.