Fagur foss sem fellur niður hamrana fyrir ofan bæinn
Foss á Síðu
Fossinn Foss á Síðu er við samnefnda bæinn Foss á Síðu, sem er stórbrotið bæjarstæði um 10 km austan við Kirkjubæjarklaustur.
Fossinn er í Þórutjarnarlæk sem rennur úr Þórutjörn, en stöðuvatnið er á heiðinni fyrir ofan. Fossinn fellur fram af gullfallegum móbergshömrum, sem eru gamlir sjávarhamrar, og eru móbergsmyndanirnar þar í kring óvíða fegurri.
Lítið bílastæði og útsýnispallur er við bæinn og er gott útsýni yfir fossinn þaðan, en þá er einnig jarðvættið Dverghamrar ekki langt frá, rétt fyrir austan, og ekki síðra útsýni yfir fossinn og móbergsmyndanirnar þaðan.