Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Sögulegt skýli á Mýrdalssandi

Dýralækjasker

Sögulegt skýli á Mýrdalssandi

Dýralækjasker

Dýralækjasker er á Mýrdalssandi þar sem farið þar um þegar syðri leiðin yfir Mýrdalssand var farin og var sæluhús reist þar árið 1910.

Húsið var reist eftir að Þorsteinn Bjarnason og Jón Sigurðsson létu lífið við að fara yfir sandinn. Húsið kom sér vel fyrir ferðalanga sem fóru yfir sandinn í þá daga og var útbúið til að þjóna sem björgunarskýli fyrir skipsbrotsmenn eftir strand George Edwards árið 1941. Skipsbrotsmenn höfðu þá náð til Dýralækjaskers en héldu áfram þar sem enginn búnaður til upphitunar var til staðar, og urðu fimm úr áhöfninni úti á sandinum.

Sæluhúsið stendur við ánna Dýralæki og er á flóðasvæði Kötlu, en stóð þó af sér Kötluhlaupið árið 1918. 

Talið er að Dýralækjarsker dragi nafn sitt að jörðinni Dýralækjum sem á að hafa staðið á svæðinu og verið hluti af Lágeyjarhverfinu á vestanverðum Mýrdalssandi. Þær jarðir fóru allar í eyði vegna hlaupa úr Kötlu, líklega á 13. eða 14. öld. Í dag stendur sæluhúsið enn, en nær þjóðveginum er lítið útskot með dásamlegu útsýni.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.