Einstakur foss í Vestur-Eyjafjöllum þar sem vindurinn feykir vatninu oft áður en það nær til jarðar
Drífandi
Drífandi er foss undir vestanverðum Eyjafjöllum. Oft ber ekki mikið á fossinum, en hann er hvað þekktastur fyrir að ná ekki að falla alla leið til jarðar af hömrunum vegna vinds, en oft getur verið ansi hvasst undir Eyjafjöllum og feykir vindurinn þá öllu vatninu í burt við hamravegginn áður en það nær niður á flatlendið.
Á veturna myndast gjarnan mikil klakabrynja við fossinn og er hann ekki síður fallegur þannig. Þá er jarðlagaskipan Vestur-Eyjafjalla vel til sýnis við fossinn, en þar má m.a. sjá falleg hraunlög og móberg. Klettaveggurinn er gamalt standberg, en sjávarstaðan á svæðinu var mun hærri við lok síðasta kuldaskeiðs og rauf hafið þá þennan vegg.
Lítið bílastæði er sunnan megin við þjóðveg eitt, framan við veðurskiltin stuttu eftir beygjuna inn að Seljalandsfossi, þar sem hægt er að virða fossinn fyrir sér.