Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Þjóðsaga, saga og náttúrufegurð

Drangurinn í Drangshlíð

Þjóðsaga, saga og náttúrufegurð

Drangurinn í Drangshlíð

Þjóðsagan segir að Grettir Ásmundarson hafi verið að sýna krafta sína og hrundið dranginum í Drangshlíð úr Hrútafelli og eftir standi skarðið sem er fyrir ofan Skarðshlíð.

Drangurinn er hins vegar að öllum líkindum gamall sjávardrangur og er að mestu leyti úr móbergi, en ekki er ólíklegt að sá hluti drangsins sem nú er hulinn jarðvegi sé úr basalti. 

Drangurinn er nokkuð rofinn og við það hafa myndast hellar og skútar. Þeir hafa verið notaðir undir útihús og árið 1928 voru t.d. fjós, 4 hlöður, fjárhellir, 3 hesthús og þurrkhellir í Drangnum.

Í dag standa enn nokkur hús og eru góð dæmi um eldri útihús og byggingar. 

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.