Óbrennishólmi í Brunahrauni

Orustuhóll

Óbrennishólmi í Brunahrauni

Orustuhóll

Orustuhóll er mosagróinn óbrennishólmi sem stendur upp úr Skaftáreldahrauni, austan Foss á Síðu, rétt sunnan þjóðvegarins. Fyrir Skaftáreldana 1783 var Orustuhóll umkringdur vatni, og sandur hvívetna þar sem Hverfisfljótið æddi stjórnlaust hvert sem það vildi. Allt það gróna land sem er suður af hrauninu var áður svartur sandur og gróðurinn er því aðeins um 200 ára gamall. Nafn Orustuhóls er talið tengjast vígi Hróars Tungugoða en sonur hans, Hámundur halti mun hafa hefnt föður síns á hólnum.