Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Valáfangar í Víkurskóla

Katla jarðvangur hefur séð um kennslu á valáföngum í Víkurskóla undanfarin misseri samhliða þess að sjá um rannsóknarverkefni nemenda í Víkurfjöru þar sem nemendur mæla fimm snið í Víkurfjöru. Verkefnið í Víkurfjöru hefur verið í gangi síðan janúar 2021, en nemendur mæla sniðin fjórum sinnum á ári og má sjá niðurstöður mælinga þeirra hér (https://www.katlageopark.is/um-kotlu/rannsoknir/vikurfjoruverkefnid/).

Samhliða því hefur jarðvangurinn boðið upp á valáfanga á haustönn í Víkurskóla, en þar fá nemendur tækifæri til að læra enn meira um fjörur og hvað stýrir breytingum á þeim. Þá var einnig valáfangi á vorönninni, en þá rannsökuðu nemendur landbrot við austanverðan Dyrhólaós, bæði með því að mæla núverandi staðsetningu á rofabörðum við ósinn og kortleggja breytingar á honum út frá eldri loftmyndum. Þá flugu nemendur dróna til að taka myndir af ósnum sem verður hægt að nota í framtíðinni til að kortleggja breytingar á ósnum. Katla jarðvangurinn vill þakka bæði Víkurskóla og nemendum hans fyrir ánægjulegt samstarf í valáföngunum.  

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.