Styrkur úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar
Katla jarðvangur fékk styrk úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar til að vinna verkefnið “Mat á rúmmálsbreytingum strandarinnar frá Reynisfjalli að Kúðafljóti, á Suðurlandi, á 20. og 21. öld”.
Í verkefninu voru breytingar á strandlínunni á milli Reynisfjalls og Kúðafljóts og breytingar á rúmmáli fjörunnar þar sem dýptarmælingar voru fyrir hendi reiknaðar, við Víkurfjöru og Alviðruhamra. Verkefnið er hluti af þeim rannsóknum sem m.a.
Vegagerðin, og nú á síðustu árum jarðvangurinn, hefur verið að vinna að varðandi landbrot við Vík í Mýrdal. Verkefnið var kynnt á rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar í nóvember 2024 og er ráðgert að gera slíka útreikninga fyrir alla suðurströnd Íslands á næstu árum.
Lesa má skýrsluna hér, en hún er eingöngu aðgengileg á ensku: https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/gagnasafn/skyrslur/utgefnar-rannsoknaskyrslur/umhverfi/2025-umhverfi/estimation-of-volume-changes-of-the-coastline-between-mt-reynisfjall-and-kudafljot-river
