Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Rannsóknarverkefni nemenda við Kirkjubæjarskóla

Katla jarðvangur og Kirkjubæjarskóli hófu nýlega tvö rannsóknarverkefni fyrir nemendur skólans, annað fyrir miðstig og hitt fyrir unglingastig.

Verkefnið með unglingastiginu hófst síðastliðið haust og snýst um að kortleggja rof af völdum Skaftár í og við þéttbýlið á Kirkjubæjarklaustri. Nemendur hafa þegar tekið loftmyndir af farvegi árinnar með dróna, bæði að hausti og vori. Á komandi skólaári hefja þeir greiningu á þeim myndum sem þeir hafa safnað.

Á sama tíma munu nemendur á miðstigi kortleggja gervigígasvæðið í Landbrotshólum á næstu árum með aðstoð drónamynda og GPS-mælinga. Mælingar verða gerðar á næstu árum og þegar nemendurnir komast á unglingastig munu þeir vinna úr þeim gögnum sem þeir hafa safnað af gervigígasvæðinu, meðal annars með því að útbúa kort af mældum svæðum. Nemendur á miðstigi fóru nýlega í sína fyrstu vettvangsferð til að mæla gervigígana, en því miður var veðrið ekki nógu gott til að hægt væri að fljúga drónanum.

Katla jarðvangur vill þakka Kirkjubæjarskóla og nemendum hans fyrir ánægjulegt samstarf og hlakkar til að halda rannsóknarvinnunni áfram á komandi árum.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.