Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Nýtt met í Ömpuhelli

Nýlega var nýtt met sett í að koma sem flestum fyrir í Ömpuhelli, en Ömpuhellir er lítill hellisskúti ekki langt frá Gljúfrabúa, og er talið að einsetukona hafi hafst þar við. Árið 2009 var héraðsmet sett í því hve margir kæmust inn í hellinn, alls 16 manns, af vinnuskóla Rangárþings eystra. Það met var síðan bætt árið 2013 þegar vinnuskólinn bætti um betur og komust þá 23 manns inn.

Nú hefur það met verið slegið, en hópur frá samtökunum Temps Jeunes frá Frakklandi náði að koma 26 nemendum og kennurum inn í hellinn nú í sumar. Hópurinn var hér á landi í um tvær vikur í sumarbúðum og ákváðu að láta slag standa þegar þau lásu um metið á fræðsluskiltinu við hellinn. 

Meðfylgjandi mynd er úr myndskeið sem var sent inn til sönnunar um hið nýja met og nú er bara að bíða og sjá hvort að vinnuskólinn reyni að endurheimta metið næsta sumar.   

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.