Jarðvangsvika Kötlu jarðvangs 2026
Jarðvangsvikan árið 2026 var haldin hátíðleg í síðustu viku með mörgum viðburðum og tilboðum. Jarðvangurinn vill hér með þakka öllum þeim sem tóku þátt í vikunni, þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem tóku þátt og auðvitað þeim öllum sem mættu á viðburði eða nýttu sér tilboðin.
Eins og vanalega voru tilboð, viðburðir og jarðvangsvikuvörur frá fjölmörgum fyrirtækjum, m.a. Skool Beans, Lava Show, ísbúðin Valdís, Katla Wool, Midgard, Ey Collection, Lava Centre, Kötlusetur, Una Sveitabúð, Hótel Laki, Una Sveitabúð, Vatnajökulsþjóðgarður, Vík Horse Adventure, Skógasafn, Iceland Wedding Planner, Gravel Travel,
Fjölmargir viðburðir voru einnig í vikunna og má þar m.a. nefna kosning um skriðjökul Kötlu jarðvangs, fyrirlestrar um jarðfræði í Kötlusetri, ganga í Klukknahelli, viðburðir í Skaftárstofu Vatnajökulsþjóðgarðs og sagnastund í Syngjanda.
