Jarðvangsvika Kötlu jarðvangs 2025
Jarðvangsvikan árið 2025 var haldin hátíðleg í síðustu viku með mörgum viðburðum og tilboðum. Jarðvangurinn vill hér með þakka öllum þeim sem tóku þátt í vikunni, þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem tóku þátt og auðvitað þeim öllum sem mættu á viðburði eða nýttu sér tilboðin.
Eins og vanalega voru tilboð, viðburðir og jarðvangsvikuvörur frá fjölmörgum fyrirtækjum, m.a. Zipline, Skool Beans, Lava Show, Midgard, Ey Collection, Hótel Klaustur, Lava Centre, Kötlusetur, SouthCoast Adventure, Súpufélagið, Hótel Laki, og Prjónastofan Katla.
Fjölmargir viðburðir voru einnig í vikunna og má þar m.a. nefna að kosið var um einkennisfoss Kötlu jarðvangs, nýji útsýnisstaðurinn við Þorvaldseyri var vígður, opið hús á Þorvaldseyri, fyrirlestur um stöðuna á Víkurfjöru og margt fleira.
