Heimsókn frá nemendum við HÍ
Ár hvert fær jarðvangurinn fjölmargar heimsóknir frá hópum, sérstaklega skólahópum, frá mörgum mismunandi löndum. Það er orðin hefð núna að hópur nemenda úr Háskóla Íslands sæki jarðvanginn heim ár hvert, en heimsóknin er hluti af áfanganum Ferðamennska og umhverfi (LAN308G), sem kenndur er af Rannveigu Ólafsdóttur prófessor við HÍ.
Nemendur fá þá kynningar á bæði starfi Kötlu jarðvangs og Kötluseturs og myndast alltaf góðar umræður um hin ýmsu mál tengd ferðaþjónustu og menningu á meðan á heimsókninni stendur. Vill jarðvangurinn hér með þakka Rannveigu og nemendum hennar kærlega fyrir ánægjulega heimsóknir síðastliðin ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendahópinn, ásamt Rannveigu lengst til hægri, fyrir framan vegglistaverkið á safninu Hafnleysu í Vík.
