Grænt Spjald Fyrir Kötlu Jarðvang
Hnattrænir UNESCO jarðvangar gangast undir úttekt tveggja erlendra sérfræðinga á fjögurra ára fresti.
Í júní 2025 var komið að úttekt hjá Kötlu jarðvangi og er um nokkurs konar gæðaúttekt er að ræða, enda fylgja ströng skilyrði því að vera hluti af alþjóðlega vottuðum áfangastað sem UNESCO Global Geoparks eru. Úttektin gekk mjög vel og vill jarðvangurinn þakka öllum fyrir sem komu að henni. 27. apríl 2026 var síðan athöfn í höfuðstöðvum UNESCO í París þar sem 12 nýir hnattrænir UNESCO jarðvangar voru boðnir velkomnir í hóp þeirra 229 sem fyrir voru, og 44 fengu skjal til staðfestingar á áframhaldandi vottun, þar á meðal Katla jarðvangur.
Vottuninn er til næstu 4 ára, eða fram til 2029, en þá þarf síðan jarðvangurinn að gangast undir aðra úttekt. Kristín Halla Kristinsdóttir, í fastanefnd Íslands hjá UNESCO veitti skjalinu viðtöku fyrir hönd Kötlu jarðvangs úr hendi Kristof Vandenberghe hjá UNESCO. Myndina tók Sacha Heron.
