Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Rannsóknaverkefni nemenda í Kirkjubæjarskóla

Katla jarðvangur og Kirkjubæjarskóli settu nú nýlega á laggirnar tvö rannsóknarverkefni nemenda við Kirkjubæjarskóla, eitt á miðstigi og hitt á elsta stigi.

Verkefnið með elsta stiginu byrjaði síðastliðið haust og gengur út á að kortleggja rof af völdum Skaftár í og við Kirkjubæjarklaustur. Nemendur hafa nú tekið drónamyndir af farveginum að hausti og að vori, og munu síðan á næsta skólavetri byrja að vinna úr myndunum sem þau hafa tekið. 

Miðstigið mun síðan koma til með að kortleggja Landbrotshóla á næstu árum, en það er gert bæði með drónamyndum og mælingum með GPS tæki. Mælingar munu fara fram á næstu árum, en síðan þegar nemendur eru komnir á elsta stigið munu þeir vinna úr þeim gögnum sem þau söfnuðu af hólunum, t.d. með því að útbúa kort að því svæði sem þau mældu. Miðstigið fór nú um daginn og mældi fyrstu hólana, en því miður var ekki hægt að fljúga drónanum vegna veðurs.

Katla jarðvangur vill hér með þakka Kirkjubæjarskóla og nemendum hans fyrir ánægjulegt samstarf og við hlökkum til að halda áfram með þessar rannsóknir á næstu árum. 

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.