Stuðlaberg í Kirkjubæjarklaustri
Kirkjugólf
Kirkjugólfið er í túninu rétt austan Kirkjubæjarklausturs. Þetta er u.þ.b. 80 m² stuðlabergsflötur, þar sem sést ofan á lóðrétta blágrýtisstuðla.
Þarna hefur aldrei staðið kirkja en það er engu líkara en flöturinn hafi verið lagður af manna höndum. Það eru hins vegar jöklar og öldur sem hafa sorfið svæðið og leitt til þess að við getum nú horft inn í stuðlabergið ofan frá.
Stuðlaberg myndast vegna samdráttar í kólnandi efni, þegar basaltbráð kólnar smám saman eftir storknun þannig að bergið dregst saman og klofnar í stuðla sem oftast eru sexstrendir. Stuðlar standa ávallt hornrétt á kólnunarflötinn.
Þá má einnig sjá mjög fallegar móbergsmyndanir í klettunum fyrir ofan Kirkjugólfið, en það er gamalt standberg frá þeim tíma þegar sjávaraldan var að vinna á Kirkjugólfinu.