Nýjasta fréttabréf Kötlu jarðvangs komið út
Nýjasta fréttabréf Kötlu jarðvangs var að koma út og má nálgast það hér. Fréttabréf jarðvangsins eru gefin út tvisvar á ári og er í þeim yfirlit yfir helstu fréttir af jarðvangnum yfir hálft árið, núna frá janúar til og með júní 2022, og má nálgast eldri fréttabréf hér. Næsta bréf kemur síðan út í janúar á næsta ári og ef þú villt birta stutta grein eða deila fróðleik um eitthvað innan jarðvangsins þá mátt þú endilega senda póst á Jóhannes á johannes@katlageopark.is