Rannsóknarverkefni í Víkurskóla – Katla jarðvangur
Katla jarðvangur og Víkurskóli, í samstarfi við Kötlusetur í Vík, hófu rannsóknarverkefni fyrir nemendur í Víkurskóla í gær, þann 12. janúar 2021. Verkefnið gengur út á að rannsaka strandlínu- og fjörubreytingar í Víkurfjöru á næstu árum.
Verkefnið felur í sér að nemendur í 5-10 bekk mæla upp 6 snið í Víkurfjöru (sjá mynd 1), ásamt því að mæla kornastærðirnar á sandinum þar og taka ljósmyndir af formgerðunum í fjörunni. 1-4 bekkur mun síðan stunda sjálfstæðar rannsóknir á sandinum í Víkurfjöru, dýralífinu sem þar er að finna og rannsaka rusl sem skolast þar á land.
Stefnt er að því að nemendur mæli sniðin fjórum sinnum á ári, á vorin, seinni part sumars, haustin og um veturinn, til að fá sem besta mynd á það hvernig fjaran breytist á milli árstíma. Þá er fjörukamburinn einnig mældur til að athuga hvort það mikla landbrot sem hefur átt sér stað við Vík sé enn í gangi. Með mælingu sniðanna má sjá hvort að fjaran sé að byggjast upp eða ekki, ásamt því að reikna út u.þ.b. rúmmálið sem hefur annað hvort bæst við fjöruna eða verið fjarlægt þaðan. Athuganir á kornastærðinni í fjörunni og formgerðunum munu síðan gefa hugmyndir um orkustig strandarinnar og er kjörið tækifæri til að fræða nemendur um hið síbreytilega landslag fjara og hver áhrif loftlagsbreytinga hafa á strandsvæði.
Markmiðin með rannsóknarverkefninu eru að nemendur kynnist því hvernig sé staðið að vísindalegum rannsóknum og fái að taka þátt í þeim, svo sem mælinga, söfnun upplýsinga og úrvinnslu gagna, en slík reynsla mun vonandi nýtast þeim vel í framtíðinni. Einnig að verkefnið muni auka skilning nemenda á strandumhverfum, sérstaklega sandfjörum, og hvað það er sem veldur breytingum á þeim, svo sem landrofi og vexti.
Stefnt er að því að birta niðurstöðu mælinganna einu sinni á ári og er áætlað að þær verði til sýnis í sjóminjasafninu Hafnleysu við Kötlusetur.
Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka honum Jóhanni Guðlaugssyni kærlega fyrir afnotin af GPS tækinu, en án þess væri ekki hægt að gera þessa rannsókn.
Mælingarnar í gær tókust mjög vel og var ekki annað að sjá en að nemendur og kennarar væru ánægð með verkefnið. Þó hefði veðráttan mátt vera betri við okkur, en það var ansi köld austan átt og gekk á með éljum á meðan mælingar stóðu yfir.