Viltu starfa á Suðurlandi? Laus staða hjá Umhverfisstofnun!
27. febrúar 2020 / Sérfræðistörf / Suðurland / 202002/448 / Umhverfisstofnun
Sérfræðingur í friðlandi Surtseyjar - Vestmannaeyjar
Sérfræðingur í friðlandi Surtseyjar
Umhverfisstofnun leitar að sérfræðingi um friðlandið Surtsey. Starfið felur í sér umsjón með friðlandinu og heimsminjastaðnum Surtsey. Í boði er krefjandi starf fyrir sérfræðing með þekkingu á umhverfisvernd í öflugt teymi sérfræðinga þar sem lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu og víðtæka samvinnu. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileika til að vera leiðandi á sínu fagsviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með friðlandinu og heimsminjastaðnum Surtsey.
- Gerð áhrifamats fyrir athafnir innan friðlýstra svæða
- Þáttaka í gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði
- Umsjón með sýningu um Surtsey í Eldheimum
- Umsjón og skipulag landvörslu á tilteknum friðlýstum svæðum á Suðurlandi
Hæfnikröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem í jarðfræði, náttúrulandfræði, líffræði eða umhverfis-og auðlindafræði. Framhaldsmenntun er kostur.
- Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og almennum rekstri.
- Reynsla af störfum landvarða og/eða landvarðarréttindi.
- Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til mismunandi hópa.
- Þekking á friðlandinu.
- Kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
- Samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskipum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Starfsaðstaða sérfræðingsins er í Vestmannaeyjum
Umsóknarfrestur um starfið er til 16. mars 2020.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2020
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Arnar Jónsson - olafurj@umhverfisstofnun.is - 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem - thoram@ust.is - 5912000
Umhverfisstofnun
Svið náttúru, hafs og vatns Teymi þjóðgarðs og náttúruverndar suður
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík